Vertis hefur gefið út Zendesk íbót í samstarfi við Taktikal til að hagnýta rafræna auðkenningu í þjónustu. Appið gefur okkur kost á að auðkenna viðmælendur í síma og spjalli með rafrænum skilríkjum.
Tilgangur
Tilgangur appsins er að auka öryggi í viðskiptum og fjölga möguleikum til hagnýtingar Zendesk.
Notkun
Í viðmóti appsins sjást símanúmer og kennitala sem kunna að vera vistuð í Zendesk. Hægt er að bæta við eða breyta símanúmerum sem tengjast rafrænum skilríkjum.
Þegar auðkenning er valin sést staðfestingarkóðinn sem viðskiptavinur fær í símann á skjánum.
Appið sýnir svo hvort auðkenning tókst eða ekki og vistar svarið frá Taktikal sem internal note í samskiptaþræðinum.
Taktkikal
Taktikal hjálpar fyrirtækjum að endurhanna og sjálfvirknivæða ferla fyrir rafrænar undirskriftir er skila sér í hraðari afgreiðslu, hagkvæmni í umsýslu skjala, minni rekstraráhættu og betri upplifun viðskiptavina.
Samstarf Vertis og Taktikal eykur verulega notkunarmöguleika Zendesk til að veita enn betri þjónustu.
Hvar fæst appið
Fyrst um sinn er hægt að fá appið með því að hafa samband við Vertis (vertis@vertis.is), sem aðstoðar við uppsetningu.
Stefnt er að því að appið verði aðgengilegt á Zendesk Marketplace fyrir árslok 2025.
Allar ábendingar eru vel þegnar.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.