Zendesk er öflugt beiðna- og þjónustukerfi sem heldur utan um öll samskipti við skjólstæðinga á einum stað og kemur erindum á réttan stað. Þar er haldið utan um samskiptasöguna svo ekkert glatist.
Stafrænt Ísland valdi Zendesk í útboði um beiðnakerfi (ticketing system) fyrir ríkið.
Dæmi um hagnýtingu Zendesk
- Hjálparsíður fyrir viðskiptavini, þar sem auðvelt er að leita.
- Samskipti við hælisleitendur á arabísku eða úkraínsku.
- Beiðnaform á netinu, til að sjálfvirknivæða umsóknir.
- Sjálfvirknivæðing erinda starfsfólks, t.d. við upphaf starfs.
- Hægt að tengja við önnur spjallmenni, t.d. frá Datalab, Snjallgögnum eða IBM Watson.
- Þjónustufulltrúar geta notað eitt kerfi til að afgreiða erindi.
- Halda utan um og afgreiða beiðnir.
- Spjall með rafrænni auðkenningu.
Meðal aðila sem nota Zendesk á Íslandi auk Stafræns Íslands eru:
- Háskóli Íslands
- Hafnarfjarðarbær
- Nova
- Kvika
- KEA hótel
Kerfið er einnig notað erlendis af fjölmörgum opinberum aðilum. Þar á meðal er NHS í Bretlandi, sem hefur bæði notað Zendesk í tengslum við innkaup og í afgreiðslu erinda vegna COVID faraldursins.
Hér má sjá sögur af því og fleiri dæmum úr opinbera geiranum.
Hér er stutt myndband um grunnvirkni kerfisins:
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.