Málaskrárappið er mjög einfalt í notkun.
Það sækir upplýsingar um málalykla og sniðmát í töflu sem vistuð er í Zendesk. Þegar smellt er á valmyndina birtist listinn úr töflunni og gildið sem er valið er vistað með miðanum sem er opinn.
Því til viðbótar er hægt að skrá málsnúmer á miðann, sem vistast þegar smellt er á hnappinn hægra megin við textaboxið. Aðeins á að skrá inn málanúmer sem þegar eru til í mála- eða skjalakerfi. Ef um nýtt mál er að ræða á ekki að skrá númer.
Samþætting við skjalakerfi er í vinnslu og því er enn sem komið er ekki mögulegt að senda miða og viðhengi í skjalakerfi. Þegar sú virkni er tilbúin verður gerð keyrsla fyrir viðskiptavini, til að vista viðeigandi efni í skjalakerfum. Þetta verður gert í samráði við Stafrænt Ísland og skjalastjóra viðkomandi stofnana.
Kerfið er í þróun og allar ábendingar eru vel þegnar.
Hér er að finna almennar upplýsingar um málaskrá.
Hér eru leiðbeiningar fyrir admin.
Athugasemdir
0 comments
Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.